08.05.2008 12:01:48 / ispinnar
Styttist í lokahófið - Ertu búin(n) að panta?
»
31.12.2007 10:53:22 / ispinnar
Ég vil óska öllum gleðilegs árs og þakka fyrir það liðna.
2007 var gott en 2008 verður ennþá betra 
Hafið það sem allra best!!
Kv,
Þórunn

»
28.10.2007 21:08:32 / ispinnar

Nói, Baldur Frosti og Kristín Sól
»
25.09.2007 14:50:01 / ispinnar
»
10.09.2007 13:54:54 / ispinnar
Sælar skvísur...
Nú er en eitt tímabilið að ganga í garð... æfingar hafa verið mjög góðar.
Ég er búin að uppfæra æfingatíminn hér til hliðar... 
Fyrsta mótið hjá okkur er poweradebikarinn hægt er að sjá leiki hér vinstra meginn.... síðan er Reykjavíkurmótið og þar á eftir byrjar Íslandsmótið...
Nú verðum við rauðar eins og síðan er orðinn.. einhver hefur verið að breyta henni... ..
Fáum smá líf hérna inn...
Hlakka til að mæta á æfingu á eftir.. sjáumst hressar!!!
Stella Rún
»
08.08.2007 20:02:29 / ispinnar
Okkar yndislega og frábæra stúlkukind hún Þórunn
á afmæli í dag. Innilega til hamingju og vonandi hefuru notið
dagsins í rigningunni 

Knús og blautir kossar
Helga J.
»
06.07.2007 09:57:03 / ispinnar
Hæhæ
Langt síðan ég hef skrifað hér inn en bara rosa gaman að spila á
landsmóti í gær. Vorum reyndar frekar lengi í gang en auðvitað kom
þetta á endanum, það er ekki að spyrja að því :-).
Svo er annar leikur í dag, lítur út fyrir að við verðum e-ð fáar
en við höfum gaman af þessu bara og gerum eins vel og við getum
(Landsmóts-thing er það ekki?) !
Ég er ekki frá því að ég sé með aðeins harðsperrur í dag, skil
ekkert í því miðað við hvað ég er búinn að vera æfa mikið, ég hef
verið að lesa mikið um íþróttasálfræði og hugarþjálfun en það er
greinilega ekki að skila sér!! Kannski maður þurfi að hlaupa í
alvörunni?? Ég íhuga það allavega ;-)
Sjáumst í dag..
Guðrún
»
22.05.2007 08:28:45 / ispinnar
Til Hamingju með Prinsinn Hanna og Sara!
»
10.05.2007 22:02:34 / ispinnar
»
22.04.2007 21:39:00 / ispinnar
Nú styttist í lokahófið jeiiii...er ekki
stemmning skvísur? Allar að mæta!!! Hvað með partý á undan -
Helga hvað segja mamma og pabbi við því að lána okkur partýplace???
Þurfum ekki langan tíma til að koma okkur í gírinn...
Kv. ein sem var alltof edrú á síðasta lokahófi haha:
»
12.04.2007 14:31:06 / ispinnar
Nú þurfum við að fara skipuleggja
menningaratburðinn, er það ekki stelpur? Sveitakonan þarf alla
vegna smá fyrirvara hehehe
Eruð þið með einhverjar hugmyndir
hvenær og hvað við viljum nú gera við sjóðinn????
Allir að drífa sig í að borga Tinnu svo að við
höfum nú einhvern sjóð!!!!
Það eru nú ekki margar dagsetningar sem koma til
greina ef við viljum gera þetta fyrir lokahófið. Lokahófið er 28.
apríl næstkomandi svo það eru tvær helgar til stefnu. Annars getum
við líka notað peninginn fyrir lokahófið - en viljum við ekki
frekar hafa ÍS lokadjamm????
Endilega látið heyra í ykkur
kveðja úr sveitinni
Alda kalda 
»
02.04.2007 15:51:19 / ispinnar
Jæja þetta gekk ekki í þetta sinn...við vitum
allar að við gátum gert mikið betur í oddaleiknum og það er það
ömurlegasta við það að vera dottnar út! Þó svo að það sé
auðvitað ömurlegt að tapa þá er alla vegna betra að tapa þegar
við erum tilbúnar og með hausinn í lagi!!! Það voru samt
örugglega ekki margir sem héldu að þessi rimma færi í oddaleik
og við sýndum öllum að við erum
hörkulið...
En þar sem tímabilið er búið hjá okkur í bili þá
er ég farin aftur í Hólminn.
Bið
að heilsa ykkur í bili
Áfram
ÍS
Alda kalda

»
27.03.2007 13:16:55 / ispinnar
»
26.03.2007 16:00:18 / ispinnar
Vonandi gengur svona áfram!
Kveðja Hrafn.....
»
19.03.2007 12:13:22 / ispinnar
Til hamingju með afmælið Ella gella 
kv. Alda Leif
»
Síður:
1 2 3 ...
15